Bloggið hennar Drífu
29.05.2006 10:19:24 / drifajons

Nýtt Blogg

Tjekk mí át á þessu bloggi....

www.drifan.bloggar.is

kíkið og kommentið ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 13:50:29 / drifajons

Fékk mér bara smá í glas.. ehhh

Hvað get ég sag…. Jésús minn almáttugur… Ég vaknaði í morgun og sagði örugglega svona 50 sinnum “úff æji nei” “sjitt” “hvað var ég að spá” “alveg rétt” "úfffff" og svo þar eftir …..Já gærkvöldið var heldur betur skrautlegt og greinilegt að það er orðið langt síðan mín drakk eitthvað að viti því ég þurfti ekki nema 5 vodka í Burn (Burn er nýji drykkurinn sem var verið að kynna) og eitt staup og þá vissi mín ekki af sér! Við getum allavegana sagt að núna er komið nóg af þessu rugli og skórnir eru komnir á hilluna!! Næst þegar ég ætla í bæinn þá verð ég edrú OG á lágbotna skóm!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 

 



En byrjum á byrjuninni… Gærdagurinn fór fyrst í að horfa á einn ágætis fótboltaleik með henni Unu og var það ágætis afþreying… Eftir leikinn var brunað heim og byrjað að mála sig og gera sig sætan og fínan fyrir partý ársins…og inní því fólst smá brunnkukrem á lappirnar og efribúk því ég var í pilsi og flegnum bol... allavegana ég er eins og RANDAFLUGA í dag!!!! sá það bara í morgun!! hahhaah. Þegar það var búið náði ég í miðana + kristalanna og lét Sollu og Ólöfu fá sína miða.. Svo fór maður samferða Ingibjörgu og stelpunum í partýið. Takið eftir, þarna á þessum tímapunkti var maður fínn og dannaður, það átti eftir að breytast til muna!! Við rétt sluppum inn í partýið því það fylltist svo stuttu seinna og skipti engu hver þú varst, húsið var fullt!!

Þetta byrjaði allt mjög vel og maður fékk sér nokkra drykki og áður en ég vissi þá var maður orðinn vel skrautlegur og ég og Ingibjörg bara tvær eitthvað að dansa hehe… :D:D

Þetta var fanta flott partý og mikið um merkilegt fólk sem ég þekki ekki einusinni né veit hver er… ég er alveg ferleg með svona Celeb hérna á Íslandi…. En maður kannaðist nú samt alveg við andlitin 8)

 

 



Ég, Ingibjörg og Sigga drifum okkur í bæinn rétt fyrir eitt og man ég að ég tók hana Ingibjörgu á hestbak upp mikinn part af Laugaveginum og þá var ég komin á táslurnar…Það var mikið hlegið og skandalast…. Já við drifum okkur á Óliver og þar voru alltaf jafn margir… Við stoppuðum þar smá og svo skönnuðum við bara bæinn….  Merkilegt að ég fékk alveg nokkur sms um að ég ætti að fara varlega … humm ég var greinilega smá skrautleg en ég skilaði mér nú samt alveg heim hehe…

 

 



Ég týndi Ingibjörgu nokkrum sinnum en þá stoppaði maður bara og lagði á hlustir og rann á hljóðið hehe…. Ætli við vinkonurnar höfum ekki bara verið svipaðar… Við fórum reyndar á Hverfis og vitiði… þangað fer ég EKKI aftur… Ég vissi að hann væri að deyja en KRÆST hvað það var ömurlegt þarna maður!! Hrikalegt!!

 

 



Já eftir mikið skrall og læti þá var ferðinni haldið á Pizza King eins og svo oft áður og þarf fengum við okkur 3 pizza sneiðar (ég 2 og Inga 1) og kók að drekka… Hvítlauksolían var ekki spöruð á neina sneiðina og þarna sátum við og átum… Það var ógeðslega kalt úti og við báðar í pilsi og ekki klæðamiklum bolum þannig að við nutum þess bara að sitja þarna og fylgjast með fólkinu… Þarna var aðeins farið að renna af manni og vandræðalegu mómentin að hrannast yfir mann hehe…

 

 



Allavegana þetta var fáránlega gaman og maður er sko aldrei svikinn af djammi með henni Ingibjörgu minni!! Ingibjörg mín takk fyrir geggjað djamm og þín verður SÁRT saknað þegar þú ferð út eftir tvær vikur!! SNÖKT SNÖKT…..

 

 



Við getum sagt að ég er búin að leggja háhæluðu skóna á hilluna !!Kannski maður noti þá bara þessar 6 vikur sem hún Inga mín er í burtu til að halda sig frá bænum og halda áfram að æfa eins og geðsjúklingur ....

 

 



Jæja þið sem sáuð mig ég vona að þið getið hlegið af þessu því ég er að reyna það hehe… Og Sigurgeir ég skilaði mér alveg heil á húfi heim, merkilegt hvað hún Drífa spjarar sig hehe.. og Villi ég kannski bjalla í þig í dag og þú kannski segir mér um hvað við töluðum hehe…

 

 



Já og ég vil þakka barþjónunum sem afgreiddu vatn því ég er ekki þunn í dag ;) þökk sé þeim og vatninu hehe

 

 



Ætla að setja á mig smá andlit því hún Una skvís ætlar að pikka mig upp og við ætlum í Ísbíltúr … og Una mín ÞÚSUND þakkir fyrir allt í gær! U know what i mean… þú ert engill :*

 

 



 

 

Eigið góðan dag og njótið lífsins :haha:



 

 




» 8 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 22:10:57 / drifajons

Tókum Esjuna aftur í nefið í dag :)

Halló allir enn og aftur….

 

Ég ætla ekkert að tala um hana Silvíu okkar Nótt því við erum sennilega öll á sama máli um frammistöðu hennar… Geðveikt… eða þannig..:!: Allavegana þá stóð maður allan tímann með Finnum enda ekki annað hægt.. Merkilega grípandi lag meira að segja.. Ég var farin að syngja með þarna undir lokin þó svo að ég væri nú ekkert að reyna að skemma lagið… Fólk vill nefnilega meina að ég geti ekki sungið!!! Merkilegt hvað fólk lætur útúr sér! Reyndar þá getur manni ekki verið gefnir ALLIR hæfileikar þið skiljið… 8)

 

Heyriði við systurnar og mamma fórum í leikhús á Fullkomið Brúðkaup á föstudaginn og fokking sjitturinn hvað það er eitthvað það fyndnasta leikrit sem ég hef á æfinni séð! Ég hló svo mikið að ég var hás í röddinni eftir :haha:! Mæli sko sannarlega með því!! Fór annars bara heim eftir það og ætlaði að bjalla á hann Gumma minn en lagðist rétt uppí rúm til að chilla smá og vissi ekki af mér fyrr en klukkan fimm um nóttina þegar ég vaknaði í ÖLLUM fokking fötunum og ofaná sænginni og öllu!!!!!! Ekki sátt… ég hata þegar þetta gerist.. Ekkert óþæginlegra en að sofa í öllum fötunum….

Vaknaði samt um hádegið þegar Una hringdi.. .Ákváðum að drífa okkur á æfingu og tókum líka all hrikalega á því… Una engar brennslutöflur þar á ferð hehehheeeheheh

 

Já meiningin var nú samt að kíkja smá á tjúttið á laugardaginn en það varð nú lítið úr því. Ég kíkti á hana Hörpu mína og það var rosa fínt. Fékk alveg nóg að borða þar og svo gaf ég reyndar frá mér allt áfengið mitt því hún Ingibjörg mín var í neyðarástandi og hvað gerir maður ekki fyrir vin í vanda ;) Jú maður lætur meira að segja frá sér allt ÁFENGI ef maður þarf þess!! Gott að geta hjálpað… Ég lumaði reyndar á annarri flösku heima og fór heim og náði í hana og kíkti á vinkonu Unu og Unu í leiðinni og fékk mér eitt glas með þeim en svo ákvað ég bara að fara heim…. Það var fínt að vera kominn snemma heim og sofa bara út. Vaknaði svo í morgun við símann og þar var hún Solla að tjékka hvort ég ætlaði ekki upp á Esjuna í dag! Jú ég hélt það nú… Við lögðum á stað upp Esjuna um hádegi í skítakulda, vind og snjókomu… Það má þá segja að núna er engin afsökun að geta ekki farið! Jú reyndar í rosa þynnku en svona hvað varðar veður þá fer ég ;)

 

Esjan var tekin á frekar slöppum tíma í þetta skiptið og ætla ég ekkert að nefna hann hér.. Ívar hljóp reyndar næstum alla leið upp og var á undan okkur alla leiðina! Aumingja Solla var alveg að springa á tímapunkti en elskan hafði það nú alla leið upp og það með sóma J Við skrifuðum í gestabókina og skunduðum aftur niður í snjónum og kuldanum…. Sollu tókst að misstíga sig og marðist smá en þar sem hún er nú skild mér og Ívari þá kom ekkert annað til greina en að harka það bara af sér….. Hún fékk að styðja sig við mig nokkra metra og svo var hún orðin góð hehe…

 

 

Þið sem viljið koma upp Esjuna just call me.. Þetta er orðið vikulegur viðburður hjá minni J Reyndar þá er djamm næsta laugardag þannig að ég veit ekki með sunnudaginn hehe… We will see :D

 

Jæja annars þá er ég bara búin að vera í chillinu hérna heima síðan ég kom heim… Ætla bara snemma að sofa og byrja vikuna alminnilega. Halda áfram að æfa eins og geðsjúklingur því ekki tekst mér að taka mataræðið mitt í gegn.. sem þýðir þá bara að ég verð að æfa ennþá meira!! Það er svo sem í lagi…

 

Jæja krakkar mínir… ég ætla að fara að hanga á Msn eða eitthvað hehe..

Vonandi eigið þið góða viku framundan hjá ykkur J

 

 

 p.s. það eru komnar inn myndir frá Esjunni í dag :) farið inní myndir all over og klikkið á esjuna ....

 

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 23:00:48 / drifajons

Is it God... Whats up dog....

Heil og sæl öll sömul.. Ég held að það sé kominn tími á nýtt blogg…

Vikan er búin að líða MJÖÖÖG hægt og er það sennilega vegna þess að ég hef voða lítið getað æft vegna harðsperra!!! Bölvaða Esjan gekk gjörsamlega frá mér! Ég er búin að vera svo hrikalega sár í rassinum og lærunum að það er ekkert eðlilegt! Gat ekki betur heyrt en að kúnnarnir mínir í Hreyfingu voru MJÖG sáttir við það að ég fengi líka harðsperrur!! Já gott að geta glatt lítil hjörtu ;)

 

 



Annars þá er ótrúlega lítið búið að gerast undanfarna daga hjá mér… Ég er alltaf að lyfta með henni Unu sætu og er það bara ótrúlega gaman J fór meira að segja til hennar í Neglur í gær og er orðin algjör pæja J Takk kærlega fyrir mig sæta mín :**

 

 



Annars þá er alveg komið upp smá plan fyrir helgina… Á fimmtudaginn þá ætla ég kannski að hitta nokkra krakka úr Hreyfingu (Er reyndar bara búin að tala við hann Villa og Unu) og við ætlum að sötra einn kaldan á meðan við horfum á Silvíu Nótt taka senuna ;) þetta verður örugglega algjör snilld…

 

 



Já og svo á föstudaginn þá er hún elskulega mamma mín búin að kaupa miða í leikhús á Fullkomið Brúðkaup og verð ég nú bara að viðurkenna að ég hef ekki farið í leikhús síðan bara á Grease hérna back in the days! Þannig að þetta verður örugglega bara gaman J  

 

 



Svo er náttla bara djamm á laugardaginn enda er hún Harpa að útskrifast og það verður partý heima hjá henni ;) Það verður bara gaman ... Smá tjútt skaðar engannn 8)

Hlakka mikið til að kíkja smá út á laugardaginn enda nokkrar vikur síðan maður gerði það hehe eða kannski bara tvær vikur.. úff er maður svona agalegur!!!??

 

 



Jæja allavegana ég ætla að taka myndavélina með og set inn einhverjar myndir eftir helgina.

Við skulum öll biðja saman um það eitt að Silvía geri ekki einhvern fjandann af sér þarna úti og komi sér bara af sviðinu þegar lagið er búið…..

 

 



Bjallið endilega ef þið viljið kíkja á Hverfis á morgun og horfa á Silvíu J


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 17:12:10 / drifajons

Ekki halda því fram að aðrir séu geðsjúkir þegar þú ert það sjálfur!!!

Helgin er þá búin og mikið hafði ég það gott 8) Ég og Íbbi vorum ein heima alla helgina og það var ótrúlega nice. Við suðum okkur pulsur á föstudaginn og pöntuðum pizzu á laugardaginn hehe… Hollustan í fyrirúmi ;) Ég fékk reyndar smá heimsókn hérna báða dagana en hún Una kíkti á mig á föstudaginn og við chilluðum með Bacardi Razz í Sprite og spjölluðum saman. Það var ótrúlega nice. Strákarnir kíktu reyndar á mig og voru hér til að verða fjögur… Þá var ég alveg að sofna þannig að þeir fóru á eitthvað djamm sem kostaði þá ALLA miklar fúlgur… Já Gummi minn oft hefur fé farið betra !! Ég svaf sem sagt vært fram á laugardag… en þá kíkti ég aðeins á Brekkuna og tók hádegiskeyrslu með þeim. Sá pínu eftir því að fara ekki á neina æfingu á laugardaginn en það varð bara að hafa það… :whut:

 

Laugardagskvöldið var mjög fínt líka því Sigurjón og Freyr frændi kíktu í heimsókn og við sátum og spjölluðum til að verða tólf en þá fór mín fljótlega að lúlla. Mikið var gott að vera edrú alla helgina og vakna hress alla morgana :DÞað var æði.

 

Veðrið í dag er búið að vera snilldin ein og giskið hvað Drífa gerði!!!! Jú jú mín tók sig bara til og labbaði upp Esjuna með honum Íbba!!!! Þetta tók lúmskt í og við pústuðum all verulega þarna strax í upphafi.. Ég hef aldrei labbað upp Esjuna og heldur ekki Ívar þannig að við vissum ekkert hvernig leið þetta var eða hvenær við áttum að slaka á eða “skokka”… Ívari tókst nú samt að renna eitthvað til og rispaði sig allan á leggnum og kálfanum… Blæddi og allt maður… Hann harkaði það nú bara að sér enda jafn harður og systir sín ;) Við stormuðum alla leið alveg upp á toppinn á 1 klst og 11 min! Sem telst til að vera fanta góður tími miða við fyrstu keyrslu.

 

Ætlum að gera þetta að föstum lið og keppast við að ná tímanum í hvert skipti. Við þetta fóru tæpar 900 kcal hjá mér :D Sem þýddi; Drífa og Ívar brunuðu beint á stælinn hehehehee…:haha: Eitt stykki ostborgari takk :!: Ahh hvað það var nú samt ljúft að setjast niður með einn sveittan….;)

 

 



Allavegana ég er gjörsamlega búin á því og veit ekki hvort ég á eftir að höndla að vinna á Brekkunni í kvöld.. Það er klukkutími í vakt og ég er gjörsamlega búin á því og komst ekki upp stigann hérna heima hjá mér!

 

 



Svona var nú helgin hjá henni Drífu litlu, ótrúlega fín. Enn ein vinnuvikan framundan og svo er helling um að vera næstu helgi… Leikhús með mömmu og systrum og svo útskrift og Eurovision partý…..:D

 

 



Drífa þakkar fyrir sig og kveður…

 

 



 

 



 

 



p.s. verið dugleg að hreyfa á ykkur rassgatið ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 19:10:32 / drifajons

Það var sko tekið hrykalega á því í dag!!

Góðan og blessaðan daginn allir saman… Merkilegt að sólin skuli skína enn…8) ég var eitthvað að efast um hana í einhverju bloggi hér á undan. Verð greinilega að taka það til baka:|. Það er alveg æðislegt að hafa þessa sól fyrir utan það að hún byrjar daginn á að koma óvelkomin inn í herbergið mitt þar sem ég get ómögulega sofið í þessari birtu:!: Reyndar þá er ég yfirleitt komin á fætur um 6 á morgnana en samt tekst henni að lýsa upp allt helvítis herbergið áður en ég á að vakna:!::!: Sveimérþá  ég held ég kaupi mér bara svona svefndrasl sem að maður setur yfir augun til þess að það sé myrkur!!8| En nóg um það…

 

Helgin er framundan og ég eginnilega neyðist til að vera róleg.. enda verð ég bara heima með litla bróðir alla helgina þar sem gamla settið er að fara norður á eitthvað svona bekkjarmót … Það er samt bara fínt þá æfi ég bara alla dagana í staðinn J Maður er kominn alveg á fullt í æfingunum þar sem það styttist óðfluga í ferðina til Wales..

 

 



Jæja ég ætla bara að hafa þetta stutt í dag því ég er að fara að hitta hana Ingibjörgu mína og hana Hörpu.. Ætlum að setjast á kaffihús og hafa það gott…

ég skal skrifa eitthvað skemmtilegt næst...

im out


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 00:16:56 / drifajons

Jæja þá er það bloggið eftir ferðina góðu til Noregs

 

Enn eitt langt blogg frá Drífu ;) sorrý Villi minn hehe

 

Sæl og Blessuð öll sömul, þá er maður kominn aftur heim eftir að hafa átt alveg frábæra helgi í Noregi 8)

 

Ég flaug sem sagt eld snemma á föstudaginn og enginn annar en hún Ingibjörg morgunhani hehe keyrði mig á völlinn.. Merkilegt alveg að hún hafi vaknað!! Takk Ingibjörg mín þú ert lang best :*  p.s. hún hefur sko stundum sofið yfir sig þegar við ætlum í hádegismat saman:!::!::!:, þannig að ég var ýkt ánægð með hana hehe

 

Vitiði ég var brjálæðislega dugleg að pakka niður í eina pínulitla flugfreyjutösku því ég ætlaði að taka hana með mér inn í handfarangur svo ég þyrfti ekki að bíða í Oslo eftir töskunni … But nooo… ég var þarna að tjekka mig inn og stelpan hjá Icelandair vildi að ég myndi vigta töskuna og ok það var ekkert mál nema hvað að hún var 9 kg og það eru 3 kg of mikið!! Hún hleypti mér EKKI inn með þessa litlu fokking tösku þó svo að þetta væri eini farangurinn minn!! Ég var næstum því búin að spyrja hana hvað hún hefði gert ef ég væri 20kg of þung…:evil: Ætlaði hún þá að segja eitthvað um þessi skíta 3kg:!::!::!::!:En þar sem ég var uppfull af góða skapinu mínu þá brosti ég bara hatursbrosinu :lol: mínu til hennar og labbaði inn að tollverðinum. Bíbaði reyndar nokkrum sinnum á mig en það var nú bara útaf beltinu mínu þannig að ég slapp í gegn ;)

 

Flugið og ferðin út gekk mjög vel og ég tók svo bara lest til Asker frá Osló og þar sótti hann Siggi mig mér til mikillar ánægju. Svo fórum við bara heim til hans eða þar sem hann býr með 3 öðrum strákum. Töskunum var svo bara sveiflað upp í herbergi og svo kíktum við á rúntinn og hann fræddi mig um Drammen :) Veðrið var algjör snilld, sól og blíða alla dagana og heit gola8):!: Spíttbátar út um allt og allir bara ótrúlega sáttir með lífið. Verð nú að viðurkenna að ég tók nú alveg upp sópinn og tuskuna þarna heima hjá strákunum hehe…;) greinilega langur vinnudagur hjá þessum elskum þar sem engin orka ver eftir til að sópa yfir gólfið hehe… Samt rosa flott hús alveg á 3 hæðum og ekki langt frá miðbænum.. ég og Siggi löbbuðum meira að segja niður í bæ á laugardeginum. Tókum smá rölt meðfram sjónum/ánni í hitanum. Ekkert smá nice. Svo fékk maður sér einn eða tvo Aass Bjóra sem er svona þeira Local Bjór. Hann er víst bruggaður þarna og alveg fantagóður bjór verð ég nú bara að segja! Svo þarna á  laugardeginum þá fórum við bara saman í strandblak og þar voru sko fórnir! Aumingja Siggi endaði með blóðugt hné sem átti alveg eftir að segja smá til sín hehe… Hann var alveg að drepast… En svona er þetta þegar maður fórnar sér… Enda vorum við bara tvö á móti þremur og ekki telst ég til að vera góð… humm…enda ekki mikið um strandblak hérna á klakanum! Svo var bara heljarinnar grillpartí um kvöldið þar sem allir sátu og grilluðu góðan mat og drukku Aass ;) Ég fékk meira að segja að skjóta úr loftriffli!!:D og ég hitti meira að segja spjaldið:!::!: Eftir þetta skemmtilega grillpartí í sólinni var svo bara haldið heim enda allir orðnir vel fullir, svo endar allt klukkan 3 þarna í Norge og svo er annað!!! Það er banna að reykja inni á skemmtistöðum!! Eigum við eitthvað að ræða það hvað það er fokking sniðugt! Ekki til þynnka hjá manni og svo voru fötin bara hrein.. Algjör snilld!

 

Ég var sem sagt alveg heilluð af þessu öllu. Ferðin var algjör snilld í alla staði og ég sé sko ekki eftir að hafa kíkt út á hann Sigga. Strákarnir sem hann bjó með voru líka alveg frábærir og ég skemmti mér konunglega þarna með þeim…

Ég flaug svo bara seint heim á Sunnudeginum og hann Siggi skutlaði mér alla leið til Osló sem tók reyndar furðu stuttan tíma. Solla sæta kom svo og sótti mig á völlinn og það er alltaf jafn gaman að spjalla við hana :D Takk fyrir það Solla mín :*

 

 



Þannig að núna er maður bara kominn heim aftur í sinn vanagang sem er svo sem fínt. 2-4 vikur í að Siggi komi heim þannig að það á eftir að vera fljótt að líða.

Ég hendi inn myndum við fyrsta tækifæri. Á eftir að setja þær inn í tölvuna en þær koma inn :)

Jæja þá er kominn háttatími á mína enda er spinning á morgun og fullt af kúnnum :)

 

Solla mín takk fyrir æðislegt kvöld og frábært spjall :)

 

 



 

C-ya




» 9 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 17:42:57 / drifajons

Þá er stundin runnin upp!!!

Jæja góðir hálsar, þá er stóra stundin runnin upp og mín er að leiðinni til Norge í fyrramálið :) Get ekki sagt annað en að það votti fyrir smá spenningi enda ekki við öðru að búast :) Ég hef fulla trú að þetta eigi eftir að vera skemmtileg ferð enda er hann Siggi hress og skemmtilegur strákur með meiru :D

Ég er búin að pakka myndavélinni niður í tösku þannig að ég set örugglega inn einhverjar myndir frá helginni eftir helgi...

Þarf samt að fara og þvo þvottinn minn svo maður geti nú tekið með sér sokkapar hehe... Svo er manni víst boðið í eitthvað afmæli á laugardeginum þannig að það verður örugglega rosa gaman 8)

Best að hafa þetta bara stutt í dag því það eru víst allir eitthvað að væla yfir því að bloggið mitt sé alltaf svo langt!! Kommon hver hefur ekki ca 5 minútur til að fórna fyrir lífið hennar Drífu ;)

Jæja Drífa halta kveður að sinni (slasaði mig eitthvað á TaeKwonDo æfingu í gær og haltra út um allt eins og fáviti,, rosa sexy þið skiljið!!!!) á eftir að setja lokahönd á alltsaman...

Hafið það sem allra allra best um helgina því ég veit að ég á eftir að hafa það gott  8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 16:34:42 / drifajons

who do you.......who do you, who do, who do you think you are..... hahahah bless your soul......

Jæja þá er kominn tími á nýtt blogg… Ég 8|

 

Ég svaf allan laugardaginn og vá hvað það er gott að sofa eins lengi og maður vill og vera ekki þunnur!!;) Þannig að ég mætti eldhress á Brekkuna um kvöldið og kíkti svo út með Sirrý (sígraða :D eins og við komumst að hún var einusinni kölluð hérna í denn  heheheeh) og Sigurgeiri. Það var bara ótrúlega fínt og við eiginlega fórum um allan bæinn! Sirrý sígraða fór reyndar fljótlega heim þannig að ég og Sigurgeir straujuðum bara bæinn allan. Það var alveg ótrúlega fínt og sjitt hvað það var stappað í bænum!! Ekki eðlilegt! Það gerðist merkilega lítið… Reyndar soldið fyndið að við skruppum aðeins á Prikið og þar var mjög fámennt og eiginnilega bara leiðinlegt þannig að við ákváðum að tilla okkur, klára drykkinn og fara…:!: nema hvað að ég sat og hugsaði .. “díses hvar eru eiginnilega strákarnir… þeir eru hérna alla daga”:$ (Fransi, Eiki og Jói(ég vissi að Gummi ætlaði að vera heima)).. Ég var mikið búin að velta þessu fyrir mér og ætlaði bara að hringja í þá og tjekka á þeim… hvort þeir væru nú ekki á djamminu:!::!: Allavegana þarna sat ég í makindum mínum með minn Vodka í Vatn og sítrónu þegar ég heyri einhvern bölvaðan brussugang í stiganum og svo rekst einhver í mig og það sullast uppúr glasinu mínu!!:evil: OG ÞÁ vissi ég að þeir væru komnir hehehee…:D Það myndaðist svona bylgja yfir allt svæðið og fólk þurfti að færa sig og passa að verða ekki undir því þeir svoleiðist komu dansandi og syngjandi inn…. Mig minnir að “jump around” hafi verið í gangi þegar þeir komu og næst þegar ég vissi þá hékk Jói uppí loftinu, búinn að krækja fótunum yfir bitana og þar hékk hann í smá tíma og hjakkaðist á loftinu..…. á meðan Eiki og Fransi kepptust við að láta húsið hrinja!! Þeir voru sem sagt hressir að vanda 8)

 

Við fórum nú samt fljótlega eftir þetta og við enduðum á Hverfis þar sem við dönsuðum vel við nokkur lög sem var bara rosa gaman… Merkilegt hvað það voru samt mörg slagsmál.. hvernig nennir fólk þessu… Minnir mig á það að þegar við vorum að labba niður Laugarveginn og á leiðinni á Pizza King þá lá einn strákur í götunni á milli húsanna og var allur í blóði…:S Að sjálfsögðu varð maður að tjekka púlsinn og sjá hvort allt væri ekki í lagi og höndin hans var öll sundurskorin og það blæddi frekar mikið…8| Allavegana við hringdum á lögguna sem mátti ekkert vera að því að sinna aumingja stráknum en hún kom nú samt… Vonandi blessaðist allt hjá þessum aumingja strák… ég stökk svo bara aftur inn á Prikið til að þvo mér um hendurnar.

 

 



Já ferðinni var svo bara haldið áfram á Pizza King þar sem ég labbaði næstum alla leiðina á sokkalistunum því ég var að kálast í fótunum.. svona er þetta þegar maður er ekki nógu fullur til að finna fyrir sársauka.. Pizzan smakkaðist bara vel og gosið líka.. ;) ég ákvað nú samt að keyra ekki heim þó svo að bílinn minn væri fyrir ofan leigubílaröðina og ég var ekkert full...  Tók bara leigara heim og rotaðist í mínu litla rúmi og svaf til hádegis…;)

 

 



Ég ætlaði reyndar að kíkja út í gær (sunnudagskvöld) og fara á Barþjónakeppnina en það einhvernveginn rann uppfyrir og ég endaði bara með lappann uppí rúmi að horfa á video.. Sofnaði svo bara snemma og vaknaði í morgun ótrúlega hress og fór að hjálpa henni Möttu minni að græja barnaafmæli sem hún var að halda klukkan 12. Daníel Töffari orðinn þriggja ára… Skemmtilegt að segja frá því að hann er örugglega eitt það þrjóskasta og óþolinmóðasta barn sem ég þekki og ÉG!! Var send út að kenna honum að hjóla því hann fékk hjól í afmælisgjöf!!!… já ég veit ekki alveg hver var með meiri þolinmæði ég eða Daníel.. hehehe..  allavegana hann kann að hjóla, svona fyrir rest! HEHE…:!::!::!: já og svo fékk ég líka það hlutverk að blása í blöðrurnar og þið vitið hvað krakkar hafa gaman að blöðrum…:$ Humm ætli það megi ekki bara segja að ég eigi enn eftir að læra að telja uppá Tíu þegar það kemur að börnum heheheehe…:| Það kemur vonandi ;)

 



 

Já ég át sem sagt yfir mig af kökum og fór 3 ½  ferð og þegar ég kom heim þá blöskraði mér svo agalega að ég dreif mig út á Línuskauta… Fór reyndar bara í 30 min en það var líka komin mígandi rigning og farið að hvessa pínu… En ég fór samt … :D

 

 



Ætla svo bara að chilla í kvöld og hafa það gott.. Enda spinning í fyrramálið og svo er maður að þjálfa allan daginn. :D

 

 



Jæja ætli þetta sé ekki komið gott í bili.. Já og pælið það eru bara 4 dagar í Norge… Sjitt það verður gaman maður ..8)

 

 



Kveð í bili

DRIVEN…

 

 




» 6 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 16:14:31 / drifajons

Hvernig er að vera þú?

Merkilegt að veðrið hafi alveg náð að vera gott í heila tvo daga!8) Nokkuð gott.. ætli það frysti ekki fljótlega.. Við sjáum til… Vonum allavegana að sumarið sé loksins komið  :) !!! Annars þá er ég bara búin að vera rosalega dugleg í vinnunni og svo er ég líka mjög mikið á Lækjarbrekku.. ágætist aukapeningur útúr því og svo er alltaf gaman að koma þangað.. Skemmtilegir krakkar. Við ætlum einmitt að kíkja nokkur út á morgun eftir vakt og fá okkur kannski einn Öl og þá meina ég bara EINN öl en ekki fleiri.. Maður er alveg komin á skrið í ræktinni og meika ekki að klúðra því í hundraðasta sinn!! :$

 

 

Var samt að hugsa um að kíkja með henni Ingu minni á barþjónakeppni á sunnudagskvöldið..:) Held að það sé bara stuð sko..:lol: ætla eitthvað að tjekka hvernig maður reddar miðum… Svo er bara frí á mánudaginn ohh það er æði.. LÖNG helgi og ég ætla að reyna að sofa sem mest, ekkert fyllerý og djamm eins og um páskana! Heheeh

 

Heyriði já ég fékk mér gat í tunguna líka .. hehe…:D bólgnaði eiginnilega ekkert og fynn rosa lítið fyrir því… enda enginn smá nagli sem ég er:!::!::!: Maður harkar nú flest af sér …;) ég náttla var með svona úti í Austurríki hérna Back in the days þegar maður var ungur hehe… þannig að þetta er svo sem ekkert nýtt fyrir mér… en samt cool :)

 

Smá spurning… þarf maður nokkuð vegabréf til Noregs? Er nebbla í smá vandræðum.. fullt af fólki segir “nei þú þarft það ekki, bara ökuskírteini” og svo segja aðrir “jú taktu það með..” Málið er að það kostar 10100kr ef ég þarf það en 0kr ef ég þarf það ekki svo plís if you know it… would you let me know :) Thanks…

 

Jæja er að hugsa um að setjast út í sólina með bók (Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn) og chilla þar til ég þarf að mæta á Lækjarbrekku klukkan 18 J

 

Hafið það sem allra allra best í sólinni og passið ykkur á að brenna ekki…. ;)

Ég blogga um leið og helgin er á enda og ég lofa að hafa eitthvað skemmtilegt að segja eftir helgina.. Hef það á tilfynningunni að eitthvað skemmtilegt eigi eftir að gerast enda er maður alltaf með kameruna á kantinum ;)

 

Heyrumst…

Drífa



 



 



 



 



 


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 14:33:56 / drifajons

Haleljúja…

Ég held að það sé kominn tími á nýtt blogg þar sem hitt var orðið frekar þreytt og út kommentað… hehe..8)

 

Það hefur nú ekki margt gerst undanfarna daga hjá mér annað en að ég æfi eins og brjálæðingur og er byrjuð aftur í TaeKwonDo… Sjitt hvað ég kveið fyrir æfingunni á miðvikudaginn.. Æji þið vitið þegar maður hættir á toppnum hérna í denn þá er ætlast til að maður geti jafn mikið.. Eða ég ætlast til þess að ég sé jafn góð hehe sem ég var ekki hehe… Hún Anna er að þjálfa og svoldið skemmtilegt að segja frá því að við byrjuðum á sama tíma hérna árið 2000 og núna er hún með svarta beltið.. Úff þannig að ég þarf að vinna mig upp aftur.. ég sagði henni að formið væri ekkert uppá sitt besta og hún var rosa góð og gaf oft vatnspásur og smá hvíld.. hehe hún hálf vorkenndi mér held ég.. Enda ekki skrítið ég gjörsamlega lak niður þegar æfingin var búin og vá daginn eftir!! Þegar ég vaknaði þá leið mér eins og ég hefði orðið fyrir bíl án gríns.. Öll alveg búin á því og átti svo eftir að kenna spinning klukkan 9 um morguninn.. Það bjargaðist nú samt allt og maður heldur ótrauður áfram.. Svo er bara aftur TaeKwonDo í kvöld J Jibbí…

Já svo erum við nokkur að fara á stað með Þolfimi hóp og ætlum að æfa saman.. Það verður geggjað.. Við erum nokkur úr Hreyfingu sem ætlum að spreyta okkur á þolfimi.. ég held að það sé bara stuð… Læt ykkur vita þegar ég er búin að fara á fyrstu æfingu í því hehe.. Við sjáum bara til hversu mikinn takt hún Drífa hefur heheheheheheh

 

Annars þá gengur þjálfunin rosa vel og ég gjörsamlega elska vinnuna mína.. Þetta er æði. Svo er bara að sjá hvort maður nái ekki ACE prófinu sem ég tek eftir einhverja mánuði..

 

Heyriði ég ætla að fara núna enda nóg að skipuleggja.. spinning á morgun og allur pakkinn þannig að ég kveð í bili

DRIVEN is out…



 



 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 07:47:18 / drifajons

Svona gerist þetta hratt... Lífið spyr ekki um stað og stund :)

Ég get ekki betur séð á skoðanakönnuninni að ég ætti að fá mér gat í tunguna J Ætla að fara á morgun og græja það… Jibbí… ekki það að það hefði skipt einhverju máli hehe…:lol:

 

Vitiði það er svo ömurlegt að vakna uppúr sex á mánudagsmorgni, drífa sig í vinnuna og svo er skrópað á mann eða þið vitið látið vita sjúklega seint að einhver komi ekki þannig að maður þarf að fara aftur heim eða bíða eftir næsta kúnna! Að byrja mánudag svona er ömurlegt… en þar sem líf mitt er eitthvað svo frábært þá get ég ekki annað en brosað…:haha:

 

Já og ég gleymdi að segja ykkur að ég var edrú alla helgina …:!::!::!: Vá já ég veit…. Það var reyndar alveg rosalega góð ástæða fyrir því fyrir utan það að ég er að taka mig á…;) Já Drífa hitti líka þennan frábæra strák á fimmtudaginn þannig að helgin fór bara í mikið spjall og skemmtilegheit ;) reyndar þá stakk hann mig af til Noregs í mánuð á sunnudagsmorgun en það verður allt í góðu ég kíki bara út ef maður er að farast úr söknuði sem ég reyndar er …. Sennilega ódýrara að splæsa í flug heldur en að hringja öll kvöld…hehe… Við sjáum bara til ;)

 

Svona er lífið fljótt að breytast maður…:!::!::!:

 

Svo fer hann Daði bráðum að fara og það sökkar…:evil: Það er búið að vera æðislegt að hafa hann hérna heima og vonandi líður ekki of langur tími þar til maður fær að sjá hann aftur… Maður flýgur þá bara út til hans það er nú ekkert svo flókið … Við systkinin hittumst ÖLL já öll! Í gær heima hjá Möttu og Hlyn og það var alveg æðislegt… Held að við höfum ekki hisst öll bara í skrilljón ár…. Sennilega meira en 10 ár öll saman þannig að það var æði og ekki skemmdi snilldar matur fyrir ;) Maður fær alltaf góðan mat hjá Möttu og Hlyn og ég tala nú ekki um grilluðu bananana með súkkulaðinu, rjómanum og ísnum ;) alveg geggjað… og Hlynur.... ég er greinilega betri á súlunni en þú hehe.... samt frekar skrítið hvað hann Daði tók sig vel á henni... humm er það eitthvað sem við þurfum að hugsa um eða....;)

 

Jæja ég ætla að leggja mig aðeins fyrst ég vaknaði svona snemma fyrir ekki neitt…

Hafiði það gott

Kveðja

Drífa

 

p.s. Siggi ég er búin að setja lagið inn í MP3 spilarann minn og er alltaf að hlusta á það :*

 

 

 

 

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 13:18:34 / drifajons

Þá er enn ein helgin gengin í garð…

Hvað haldiði að Drífa hafi gert á föstudagskvöldi.. Jú jú hún var edrú!! Ætla að vera edrú alla helgina og næstu helgar líka enda mín búin að taka skrautlega á því undanfarna tvo mánuði ;) núna er bara að æfa á fullu fyrir fitness og koma sér í bikiníformið fyrir sumarið og kastalann í Wales :D gengur ekki að vera einkaþjálfari ekki í formi… oj hvað það verður gaman úti maður!!!   Annars þá er rosa lítið að frétta af mér nema kannski að lífið brosir við manni þessa dagana eða alveg síðan á fimmtudaginn hehe… Drífa er ótrúlega glöð þessa dagana enda góð ástæða til þess að brosa hringinn…:D

 

 



Það verða sem sagt fáar myndir þessa helgina því maður er orðinn svo rólegur :S Kannski set ég eitthvað inn það kemur í ljós. Allavegana ég ætla að fara að horfa á litla bróðir keppa í fótbolta eftir smá.. Maður verður víst að hvetja kappann það er aldrei að vita nema að hann meiki það einn daginn 8) hehe nehh segi svona..

 

 



Hafið það sem allra allra best um helgina og ég blogga um leið og ég hef eitthvað skemmtilegt að segja fyrir utan það að ég er ýkt sátt með lífið :)

 

 



p.s. Solla mín u are the best :*


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 11:17:19 / drifajons

Myndir af árshátíðinni eru komnar inn :)

Jæja þá er árshátíðin búin…

 

 



Ég vil byrja á að þakka Kidda, Villa, Þórhildi og Sigurbjörgu fyrir snilldar reddingu á árshátíð. Þetta var algjör snilld og ég tala nú ekki um myndbandið hahah.. Þórhildur ég vissi ekki að þú gætir sungið ;) Þú hrifsaðir reyndar alla titlana sem var eitthvað varið í ;)  Allavegana þetta var rosa gaman :D

 

 



Ég ætlaði náttla að vera edrú en fékk mér nú samt smá þannig að ég keyrði ekki heim… Vaknaði bara þokkalega snemma og fór í sturtu og er að hugsa um að fá mér einn góðan göngutúr hérna um nesið enda fallegt veður úti. 8)

 

 



Jæja ég ætla ekki að hafa þetta neitt langt enda var mín komin snemma heim :o)

Það eru komnar myndir af árshátíðinni :D

 

 



Kveðja

Drífa

 

p.s. Lóa lets just say it did not go as I wanted!!  :^)


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 00:02:33 / drifajons

Það má eiginlega segja það að ég skulda svo sannarlega blogg og fjandinn hafi það það er sko hellingur búinn að gerast!!

 

Where to begin!!!

Við getum allavegana sagt að ég kíkti út á fimmtudaginn, föstudaginn, laugardaginn og Sunnudaginn!! Og það er hægt að segja að það gerðist eitthvað alla dagana…

 

 



Aumingja Jón Hrafn að hafa verið einn heima því húsið hans er í rúst! Við vorum hjá honum alla dagana og það má segja að margt hafa gerst sem betur er left unsaid!

Það voru teknar margar myndir en mér var einfaldlega bannað að setja helminginn inn ;) hahhaaha

 

 



Laugardagurinn var ekkert smá skemmtilegur enda kom bróðir minn óvænt heim frá Serbíu. Hann býr sko þar með konu og börnum J Sjitt hvað það var rosalega gaman að sjá hann. Reyndar þá missti Matta snillingur það útúr sér að hann væri að koma þannig að ég vissi það daginn áður en það var allt í góðu… allavegana það var geðveikt gaman að sjá hann J

 

 



Svo fór allt úr böndunum á laugardaginn heima hjá Jóni og má segja að skemmdirnar þar séu töluverðar… Humm…. Blóð á veggjum og upphleypt parket allstaðar! Imagine. Best að segja ekkert meira um það í bili…

 

 



Svolítið merkilegt að ég drakk eiginlega ekkert alla dagana nema sunnudaginn og það var eini dagurinn sem að ég “mátti ekki” drekka!! Því það var ferming daginn eftir hérna heima og early rise!!

 

Allavegana ég kíkti sem sagt út á sunnudaginn með henni Önnu skvísu og við dönsuðum af okkur rassinn strax í upphafi kvöldsins en svo skutlaði hún mér á Óliver til hennar Ingu minnar sem tók hressilega á móti manni eins og alltaf… Við fórum svo þaðan yfir á Hverfis og það átti eftir að vera viðburðaríkt kvöld… Inga stóð sig vel eins og alltaf í strákamálunum fyrir mig.. og sér nánast alveg um þetta fyrir mig.. það eina sem ég þarf að gera er að mæta á staðinn… HEHE… Inga þú veist hvað ég meina…

Reyndar mér til mikillar undrunar þá mætti Bjössi á hverfis og hvenær gerist það!! Tja allavegana þá leit hann bara vel út og ég gat ekki betur séð en að hann væri í góðra vina hóp if you know what i mean… talaði annars ekkert við hann enda lítið að segja…

 

 



Já og hvað haldiði að hafi svo komið fyrir Drífu litlu.. jú hún var eitthvað að flíta sér og haldiði að mín hafi ekki bara gengið á einhverja hönd sem tókst að stinga fokking puttanum inn í augað á mér þar til það datt næstum útúr eyranu mínu!! Það var vægast sagt vont! Og þið vitið að þegar Inga er orðin smá full þá fattar hún ekki alltaf hvað er að gerast að hverju sinni.. og var alltaf bara “ Drífa þetta venst þetta er bara vont fyrst.. hættu þessu væli” á meðan var ég inná kallaklósetti á Hverfis að skoða augað…allavegana þá var ég að farast í auganu og vildi fara að fara….. Og þá fórum við af Hverfis… Vorum að rölta niður laugarveginn þegar tveir strákar þurftu endilega að vera með bögg fyrir framan mig og allir vita hvað gerist ef Drífa sér svoleiðis.. Jú jú  hún stökk á stað og fékk líka þetta þrusu olnbogaskot beint á kjaftinn… Já vörin var fljót að sýna ummerki um barsmíðar og bólgnaði skemmtilega upp án þess að springa … humm….  Allavegana þá skilaði ég mér ekki heim fyrr en um 8 og þurfti að vakna 9... Það er alveg óhætt að segja að mín hafi oft litið betur út… með bólgna vör, ósofin með bauga og blind á öðru auga….

En svona í framhaldi af þessu öllu þá missti ég nánast sjónina á hægra auganu og gat nánast ekkert séð.. Jú jú sá svo sem alveg útlínur en enginn sjens á að lesa né sjá andlit í svona 10m fjarlægð hehe…

Dreif mig bara uppá slysló í gærkvöldi (mánudagur) og þar fékk ég eitthvað síklalyf og á að nota það í nokkra daga.. GEÐVEIKT! Það sést reyndar ekkert á auganu mínu þannig að það sleppur J

Annars þá var fermingin æðislega og ívar ekkert smá sætur eins og alltaf… Kökurnar æði og bara allt.. Rosa gaman að hitta alla ættingjana J

 

 



Já svona var sunnudagurinn viðburðaríkur hjá minni… Dröslaðist á æfingu í dag (þriðjudagur) og gat ekkert! Sjitt allt þol farið og svo er árshátíð á morgun í Hreyfingu.. Guð minn góður ætla nú samt að stefna á að vera edrú… Við sjáum til hvernig það endar…

Jæja þetta var í mjög grófum dráttum það sem að ég gerði um páskana…. Setti inn myndir og núna er hægt að skoða allt sem fer fram.. nema eitt kvöld heima hjá Jóni þar sem strákarnir tóku það ekki í mál þannig að ég fer bara eftir því ;)

En það eru nú samt nokkrar myndir af djamminu og svo líka af sunnudagsdjamminu fræga…

Endilega kíkið á þetta

 

 

 http://community.webshots.com/user/djamm101



 

Farin að sofa

Bæjó

 

 



p.s. LÓA er þetta nóg ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3